Íslenska flugfélagið Primera Air hyggst flytja starfsemi sína frá Íslandi til Danmerkur. Jón Karl Ólafsson, forsjóri fyrirtækisins, segir í samtali við RÚV að mörgum fyrirtækjum sé orðið óbærilegt að starfa hér á landi vegna gjaldeyrishafta og vegna þess að víða sé nú krafist fyrirframgreiðlsu í viðskiptum félagsins sökum vantraust í garð Íslendinga. Hann segir þetta leiða til þess að hvergi sé hægt að fá lánafyrirgreiðslu.
Primera Air, sem er í eigu Andra Más Ingólfssonar, rekur sex flugvélar. Jón Karl segir félagið þurfa að ná sér í flugrekstrarleyfi í Danmörku. Primera Air vinni mest á erlendum mörkuðum og fyrirtækið sæki sér meira traust með því að flytjast úr landi og í skjólið sem fáist á stærri markaði.
Hann segir fleiri stór íslensk fyrirtæki íhuga að flýja land og koma sér í stærra skjól.
