Laugardagur - 25.4 2009 - 12:48 - Ummæli ()

Jóhanna hittir erlenda fjölmiðla í fyrsta sinn. Talar á íslensku, túlkar þýða spurningar og svör

johannasigurardottir.jpgJóhanna Sigurðardóttir hittir erlenda fjölmiðlamenn í fyrsta sinn eftir að hún tók við embætti forsætisráðherra á blaðamannafundi sem boðaður hefur verið í Þjóðmenningarhúsinu síðdegis. Jóhanna mun mæla á íslensku, en túlkar þýða spurningar blaðamanna og svör Jóhönnu.

Fjöldi erlendra blaðamanna er á landinu vegna þingkosninganna. Umfjöllun er um kosningarnar í mörgum erlendum miðlum á netinu í dag.

Fram að þessu hafa íslenskir forsætisráðherrar jafnan talað ensku eða norðurlandamál á fundum með erlendum blaðamönnum. Leiðtogar erlendra stórvelda mæla þó yfirleitt á þjóðtungu sinni þegar þeir hitta erlenda blaðamenn.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar