eyjan.is

Þriðjudagur 28.04.2009 - 20:43 - Ummæli ()

Sendiherra Bandaríkjanna lofað Fálkaorðu. Afturkallað með símtali á hlaðinu á Bessastöðum

carol-sendiherra.jpgFráfarandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, dr. Carol von Voorst, var fyrir skömmu boðuð til fundar við forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, á Bessastöðum til að veita viðtöku riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu sem henni hafði skriflega verið tilkynnt um. Á heimreiðinni á Bessastöðum var hringt í síma hennar frá forsetaskrifstofunni og tilkynnt að ekkert gæti orðið af því að hún fengi orðuna, en henni væri velkomið að þiggja veitingar hjá forsetanum.

Frá þessu furðulega máli var greint í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld þar sem meðal annars var sýnt bréf frá utanríkisráðuneytinu þar sem sendiherranum var tilkynnt um orðuveitinguna og lesin upp yfirlýsing forsetaskrifstofunnar um að mistök hefðu átt sér stað.

Kastljós sagðist hafa heimildir fyrir því að sendiherrann hafi verið ósáttur við þetta en hafi þó farið til Bessastaða. Sendiherrann hafi skilið orð forseta Íslands þetta kvöld þannig að orðuna fengju aðeins  „þeir sem hennar væru verðir“.

Í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni sem lesin var upp sagði að þau leiðu mistök hefðu verið gerð í aðdraganda brottfarar sendiherrans að orðuritari, Örnólfur Thorsson forsetaritari, hafi sent erindi til prótokollstjóra utanríkisráðuneytisins um að ákveðið hafi verið að sæma Carol van Voorst sendiherra heiðursmerki Hinnar íslensku fálkaorðu, án þess þó að formlega hafi verið gengið frá ákvörðuninni í orðunefnd.

Jafnframt sagði í yfirlýsingunni að forseti Íslands hefði beðið sendiherrann afsökunar á þessum mistökum.

Í orðunefnd sitja auk Örnólfs Thorssonar forsetaritara, Ólafur G. Einarsson, fyrrv. ráðherra og fyrrv. forseti Alþingis, sem er formaður, Jón Helgason, fyrrv. ráðherra, Rakel Olsen, framkvæmdastjóri, Ólafur Egilsson, fyrrv. sendiherra og Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður UNICEF.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is