eyjan.is

Miðvikudagur 29.04.2009 - 11:11 - Ummæli ()

Auglýsing Samtaka iðnaðarins vekur hörð viðbrögð Femínista-félagsins. Neyð kvenna misnotuð

fagmannedafuskara.jpgFemínistafélag  Íslands fordæmir auglýsingu sem Samtök iðnaðarins birtu í dagblöðunum í morgun undir fyrirsögninni „Velur þú fagmann eða fúskara?“ Verið sé að nýta neyð kvenna í auglýsingunni.

Femínistafélagið segir í tilkynningu sem það sendi fjölmiðlum að í auglýsingunni standi sveittur karl með sprautu yfir nöktum og glenntum fótleggjum sem greinilega tilheyri konu. Myndin ásamt yfirskriftinni sé skýr tilvísun í ólöglegar fóstureyðingar.

Femínistafélagið segir að ólöglegar fóstureyðingar hafi sem betur fer ekki verið nauðsynlegar á Íslandi í langan tíma. Á þeim tímum og stöðum þar sem þær séu framkvæmdar séu þær neyðarúrræði kvenna sem hafi í för með sér líkamlegar og andlegar þjáningar.

Femínistafélag Íslands formdæmir harðlega að Samtök iðnaðarinns skuli nýta sér neyð kvenna í auglýsingum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is