Auglýsingin sem femínistar fordæmdu dregin til baka. Samtök iðnaðarins biðjast afsökunar
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins hefur beðist afsökunar á auglýsingu samtakanna í Fréttablaðinu í dag sem fór fyrir brjóstið á mörgum og var harðlega gagnrýnd af Femínistafélaginu. Auglýsingin hefur verið dregin til baka og verður ekki birt aftur.
Í yfirlýsingu sem Eyjunni barst í hádeginu, og undirrituð er af Jóni Steindóri Valdimarssyni framkvæmdastjóra SI og Rakel Pálsdóttur upplýsingafulltrúa, segir:
Samtök iðnaðarins hafa ákveðið að hætta birtingu blaðaauglýsingar með fyrirsögninni: Velur þú fagmann eða fúskara? Auglýsingin birtist í Fréttablaðinu í dag. Tilgangur auglýsingarinnar var að vekja fólk til umhugsunar um að fagmennska á við í öllum greinum. Myndmál auglýsingarinnar er mjög sterkt og hefur vakið hörð viðbrögð. Samtök iðnaðarins viðurkenna að þeim hafi orðið á mistök með birtingu auglýsingarinnar í ljósi þessa. Samtökin biðja alla þá sem telja sér misboðið afsökunar, sérstaklega heilbrigðisstéttir og konur.
Sjá fyrri frétt Eyjunnar um að Femínistafélag Íslands hefi fordæmt auglýsinguna harðlega.
Félag fæðingar- og kvensjúkdómalækna hafði líka krafist þess í dag að Samtök iðnaðarins bæðust afsökunar á auglýsingunni. Í tilkynningu frá formanni félagsins, sagði að SI ætti að biðja íslenskar konur og lækna afsökunar á þeirri grófu aðför sem lesa megi út úr auglýsingunni.
Í tilkynningunni segir Arnar Hauksson, læknir, að sú ímynd, sem Samtök Iðnaðarins hafi valið með auglýsingunni sé smekklaus, ruddaleg og niðurlægandi fyrir fagstétt lækna og konur í þessu landi og verði að teljast ósamboðin samtökunum.
Auglýsingastofan Hvíta húsið sem framleiddi auglýsinguna hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í dag vegna málsins:
„Vegna sterkra viðbragða við auglýsingu fyrir Samtök iðnaðarins vill Hvíta húsið taka eftirfarandi fram.
Tilgangurinn með auglýsingunni er að vekja fólk til umhugsunar um hvort rétt sé að velja fúskara til að sjá um verk fyrir sig eða að nýta sér þjónustu fagmanna. Eins og segir í auglýsingunni þá kemur ekki til greina að velja fúskara til sumra verka og með myndlíkingunni erum við að vekja fólk til umhugsunar um hvort önnur lögmál ættu að gilda um húsbyggingar, bílaviðgerðir og hárskurð svo dæmi séu tekin.
Á Íslandi erum við svo heppin að búa við fyrsta flokks læknisþjónustu hæfra fagmanna enda dettur engum í hug að ráða fúskara til að framkvæma læknisaðgerðir. Auglýsingin sýnir ekki mynd af lækni og kastar engri rýrð á fagmennsku eða hæfni íslenskra lækna heldur vísar hún þvert á móti til fagmennsku þeirra, sem enginn vill vera án. Alls ekki er verið að vega að starfsheiðri læknastéttarinnar, raunveruleikinn hér á Íslandi er sá að það eru ekki fúskarar í heilbrigðisstéttum, við myndum aldrei láta það viðgangast og við eigum ekki að láta það viðgangast í öðrum stéttum – það eru skilaboðin í auglýsingunni.
Sú staðreynd að íslenskar konur þurfa ekki að leita til fúskara til að fara í fóstureyðingu er einmitt ástæða þess að þessi líking var valin í auglýsingunni, þessi staða er óhugsandi á Íslandi og enginn myndi sætta sig við hana. Myndin dregur vissulega upp andstyggilega mynd af neyð kvenna sem var, en er sem betur fer ekki raunveruleikinn á Íslandi í dag. Að birta mynd af ástandi sem er óásættanlegt og hvetja til þess að slík spilling eigi sér ekki stað á öðrum sviðum, gerir að okkar mati ekki lítið úr erfiðri stöðu kvenna, heldur bendir þvert á móti á að þessi staða sé með öllu óþolandi.
Hvíta húsinu þykir miður að auglýsingin hafi valdið uppnámi, tilgangurinn var sannarlega ekki að stuða aðra en þá sem styðja ólöglega atvinnustarfsemi, samfélaginu til mikils tjóns.
F.h. Hvíta hússins, Sverrir Björnsson.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
