Gjaldþrot Fons: Skiptastjóri þarf að selja 23% eignarhlut í 365 miðlum
Við gjaldþrot Fons, eignarhaldsfélags athafnamannsins Pálma Haraldssonar, þarf skiptastjóri þrotabúsins meðal annars að selja 23% hlut félagsins í 365 miðlum, sem á og rekur m.a. Fréttablaðið, Stöð 2, Bylgjuna og vefmiðilinn Vísi.
Þetta er fullyrt í vefmiðlinum Pressunni í dag.
Á síðasta ári keypti félag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem nú heitir Sýn (áður Rauðsól), 365 miðla. Í desember í fyrra skýrði Fréttablaðið frá því að Jón Ásgeir væri eini eigandi Sýnar og þar með allra fjölmiðlanna. Ekki hefur áður verið upplýst um 30-35% eignarhlut Pálma Haraldssonar/Fons í Sýn.
Meðal annarra eigna Fons eru Securitas og Plastprent, hlutur í leikfangakeðjunni Hamleys og ferðaþjónustufyrirtækinu Ticket.
Athafnamaðurinn Jóhannes Kristinsson á einnig hlut í Fons með Pálma Haraldssyni. Skuldir Fons eru sagðar nema 20 milljörðum króna, en talsverðar eignir munu vera í búinu, þar á meðal fjórir milljarðar í reiðufé.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
