eyjan.is

Mánudagur 04.05.2009 - 11:50 - Ummæli ()

Þekktur gagnrýnandi gefur Yrsu 5 stjörnur á vef Barnes & Noble. Arnaldur á metsölulistum á Spáni

yrsasigurdardottir.jpgSkáldaga Yrsu Sigurðardóttur, Sér grefur gröf, er spennandi fimm stjörnu glæpasaga að mati Harriet Klausner, eins áhrifamesta gagnrýnanda heims. Hún segir að atburðarásin sé hröð og hvergi sé slegið af í þessari fínu glæpasögu. Þá skrifar gagnrýnandi The New York Post að óhætt sé að fullyrða að sagan veki hroll hjá lesandanum.

Harriet Klausner, sem er fyrrum bókavörður, er enginn venjulegur gagnrýnandi en ekki er langt um liðið síðan vikuritið Time fjallaði um hana og sagði að hún væri einn áhrifamesti ritdómari heims um þessar mundir. Hún fái sendar fimmtíu bækur á viku frá bandarískum forlögum sem keppist um að ná athygli hennar. Í grein Time sagði að hún hefði sett fleiri dóma inn á amazon.com en nokkur annar. Tímaritið sagði að Klausner væri hluti af hljóðlátri byltingu á því hvernig smekkur bandarísku þjóðarinnar mótast. Áhrif gagnrýnenda blaða og tímarita á það hvað menn lesi fari þverrandi. Lesendur hafi meiri áhuga á því hvað leikmenn skrifi um bækur á netinu. Þeir gagnrýnendur lesi sér til ánægju – eins og aðrir. Klausner birti umsögn sína um Sér grefur gröf á vef Barnes & Noble bókabúðakeðjunnar. Enska útgáfa bókarinnar nefnist My Soul To Take.

Fleiri íslenskum glæpasagnahöfundum vegnar vel á erlendum mörkuðum. Í frétt frá Forlaginu segir að skáldsagan Grafarþögn eftir Arnald Indriðason hafi komið út fyrir rúmum mánuði á Spáni undir heitinu La mujer de verde. Þýðingin hafi gengið gríðarlega vel í spænska lesendur og setið allan aprílmánuð í efstu sætum metsölulistanna. Á metsölulistum þriggja stærstu blaðanna í Katalóníu – La Vanguardia, El Periódico og El Mundo: Catalunya – hafi bókin farið beint í fimmta sæti en hækkaði sig viku síðar í fjórða sæti og hafi setið þar síðan.

Sömu sögu sé að segja á metsölulista La Razon sem kemur út um allan Spán. Á þeim lista slái Arnaldur við metsölubókum eins og Twilight-bókum Stephenie Meyer og Lesaranum eftir Bernhard Schlink með því að sitja fast í fjórða sæti. Raunar virðist vinsældir Arnaldar teygja sig ansi víða á Spáni og sem dæmi megi nefna að í blaðinu Hoy, sem kemur út í Extremadura héraðinu vestast á Spáni, hafi Grafarþögn líka farið beint í fjórða sæti og þar hafi hún verið síðan.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is