Sóley Tómasdóttir, ritari Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, greinir frá óánægju innan flokksins með kynjahlutföll í nýrri ríkisstjórn í Morgunblaðinu í dag. Sjö karlar og fimm konur sitja í ríkisstjórninni og telur Sóley það til marks um karlaslagsíðu í stjórninni.
Sóley segir Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins, hafa komið flokksmönnum á óvart með því að ganga gegn samþykkt flokksráðs VG um jöfn kynjahlutföll í ríkisstjórn. Að sögn Sóleyjar var samþykkt ályktun á flokksráðsfundinum á sunnudag, sem í fólust tilmæli til formanns flokksins um að tryggja jöfn kynjahlutföll í ríkisstjórn. „Þetta fer formaðurinn með frá okkur út af fundinum, birtist okkur í sjónvarpi tveimur tímum síðar og kynnir okkur karlaslagsíðu í ríkisstjórn,“ segir Sóley í Morgunblaðinu. Hún segir þó ljóst að vinstri græn byggi á feminískum gildum.
„Við höfðum skynjað það, ansi mörg í flokknum, að talsverð hætta var á karlaslagsíðu í ríkisstjórninni,“ segir Sóley. „Það var alveg ljóst að ráðherrarnir myndu skiptast fimm og fimm en þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð fólks sem sérstaklega vildi gæta jafnræðis kynjanna virðist vera óyfirstíganlegt þrep að hafa fleiri konur en karla,“ segir Sóley. Þrír karlar eru í ráðherraliði vinstri grænna og tvær konur. Hið sama á við um Samfylkingu.
Sóley segir, til marks um það hve mikil áhersla sé lögð á kynjajafnrétti innan VG, að tvö meginþemu hafi verið á flokksráðsfundinum á sunnudag, annars vegar Evrópumálin og hins vegar jafnréttismál. „Ég hugsa að það hafi verið brýnt álíka oft fyrir forystunni að tryggja jöfn kynjahlutföll í þessari ríkisstjórn eins og með og á móti ESB og allar hliðar á því máli,“ segir Sóley.
215
97