Þriðjudagur - 12.5 2009 - 09:12 - Ummæli ()

Þingmaður VG: Ekki víst að sótt verði um aðild að Evrópusam- bandinu í sumar

thuridur_backman.jpgÞuríður Backman, þingmaður VG, er efins um að hægt verði að afgreiða umsókn um aðild að Evrópusambandinu á þinginu sem kemur saman í lok vikunnar.  Hún segir að þótt rík áhersla sé lögð á afgreiðslu málsins af hálfu Samfylkingarinnar sé ekki þar með sagt að hægt sé að lofa því eða fylgja því eftir.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Fram kemur að Þuríður er einn þeirra fimm þingmanna flokksins, sem hafa lýst því yfir að þeir muni ekki styðja tillögu um umsókn að Evrópusambandinu. Hún vill  bíða með ESB-mál þangað til úr rætist í efnahagsmálum. Það taki vonandi ekki mikið meira en tvö ár. Hún segist ekki vilja tefja málið, en mikilvægt sé að það fái þinglega meðferð og verði sent til umsagnar í nefndir. Helst vilji hún þjóðaratkvæðagreiðslu um umsóknina sjálfa.

Fréttablaðið ræðir einnig við VG þingmennina Lilju Rafneyju Magnúsdóttur og Ásmund Einar Daðason sem bæði lýsa yfir andstöðu við tillögu um aðildarumsókn.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar