Föstudagur 15.05.2009 - 08:00 - Ummæli ( )
Færði eignir til Tortola og skráði húsið á konuna
Sigurður Valtýsson, forstjóri Exista, færði allan eignarhlut sinn í Exista til Yenvis Inc. á Tortola 11. september 2008, nokkrum vikum fyrir bankahrunið. Verðmæti bréfanna þá var 160 milljónir króna en þau eru nú hálfrar milljónar króna virði.
Þetta kemur fram í DV í dag.
Sigurður vildi ekki svara spurningum blaðamanns þar sem spurningarnar vörðuðu persónulegar fjárreiður hans.
Auk þess að færa hlutabréfin til Tortola afsalaði hann einbýlishúsi sínu að Iðalind 2 í Kópavogi til eiginkonu sinnar stuttu eftir bankahrunið.
Ummæli ( )
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
