Þýska klámstirnið Sexy Cora tók aðeins of stórt upp í sig þegar hún stefndi á slá met í munnmökum fyrir nýja kvikmynd.
Stúlkan hafði stefnt á að ná 200 mönnum en þegar kom að „herra 75″ svelgdist henni svo á að hún náði vart andanum og hafnaði á spítala.
Cora, sem réttu nafni heitir Carolin Berger og er 21 árs, fékk skilorðsbundinn dóm á dögunum fyrir að taka upp kynlífsatriði í fjölskyldugarði í Hamborg. Garðinum svipar til Fjölskyldu og húsdýragarðsins í Laugardal. Þetta var um hábjartan dag.
Mæður og feður í miklu uppnámi gerðu lögreglunni viðvart. Meðleikarar Coru reyndu að leggja á flótta þegar lögreglan mætti til handtöku. Einn þeirra braut á sér ristina þegar hann hrasaði um buxurnar sínar á flóttanum. Ungmennanna bíður nú dómur fyrir ósiðlegt athæfi á almannafæri.
