Húsleitir voru gerðar á 10 stöðum í dag og á þriðjudaginn í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum félagsins Q Iceland Finance ehf á 5,01% hlut í Kaupþingi.
Þetta kemur fram fréttatilkyningu frá Ólafi Haukssyni sérstökum saksóknara.
Um er að ræða kaup Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani frá Qatar á 5% hlut í Kaupþingi fyrir um 25 milljarða króna skömmu fyrir fall bankans í fyrrahaust.
Fjármálaeftirlitið skoðaði málið strax í haust og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði FME viðvart í nóvember.
Til rannsóknar er grunur um meinta markaðsmisnotkun og eftir atvikum brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við umrædd kaup á hlutabréfum í bankanum í lok september 2008. Um er að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Yfirheyrslur vegna rannsóknarinnar eru hafnar af hálfu embættisins. Embættið fékk úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur fyrir húsleitinni.
Aðgerðirnar í dag voru víðtækar og hófust með leit á þremur stöðum samtímis kl. 10 í morgun. Alls tóku um 20 manns þátt í þeim þ.e. starfsmenn embættisins, lögreglumenn frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra sem og starfsmenn frá Fjármálaeftirlitinu.
Frekari upplýsingar um framgang rannsóknarinnar er ekki unnt að veita að svo stöddu vegna rannsóknarhagsmuna, segir í tilkynningunni.
Nokkrir aðilar hafa fengið réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsóknina, en enginn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, að því er kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins.
Sjá einnig:
Upprunaleg frétt Eyjunnar um kaupin, 22. september.
Umfjöllun um málið á Eyjubloggi Egils Helgasonar 9. desember.
