Laugardagur - 23.5 2009 - 14:36 - Ummæli ()

Björgólfur Thor í snekkju ríka og fræga fólksins í Cannes

bjorgolfur-thor-kristin.jpgBjörgólfur Thor Björgólfsson og Kristín Ólafsdóttir voru meðal gesta í snekkjupartýi Pauls Allens í Cannes í gær, en VIP-veislur hans eru með þeim eftirsóttustu á kvikmyndahátíðinni sem nú er að ljúka. Myndir af hjólakornunum má sjá víða á netinu.

Veislan var m.a. haldin til heiðurs nóbelsverðlaunahafanum Dr. James Watson, sem uppgötvaði DNA með Francis Crick, og til styrktar rannsóknum hans á erfðafræði geðsjúkdóma. Allen stofnaði Microsoft ásamt Bill Gates og er einn auðugasti maður heims. Hann hefur áður haldið VIP-veislur í Cannes sem vakið hafa mikla eftirtekt.

Hér má sjá ýmsa gesti koma til veislunnar, m.a. Orlando Bloom, Lilly Cole og Willem Dafoe.

Í fyrrakvöld var var Dr. Watson heiðraður á AIDS-rannsókna Galakvöldi þar sem Bill Clinton hélt aðalræðuna, en hann var þar aðalgestur ásamt leikkonunni Sharon Stone. Ekki hefur þó verið gefið upp hvort Clinton hafi líka verið með Björgólfi og Kristínu á snekkjunni.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar