eyjan.is

Laugardagur 23.05.2009 - 21:30 - Ummæli ()

Hagsmunasamtök heimilanna ánægð með mætingu á Austurvöll

austurvollur.jpgVel var mætt á samstöðufund sem Hagmunasamtök um heimilin héldu á Austurvelli í dag að sögn Þórðar Björns Sigurðssonar frá samtökunum í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.. Hann treysti sér ekki til þess að skjóta á mannfjöldatölur en sagði Austurvöll hafa verið þétt skipaðan. Fjórir ræðumenn héldu tölur og hljómsveitin EGÓ lék tónlist inn á milli.

„Við erum mjög ánægð með þessa mætingu og finnum fyrir miklum stuðningi almennings,“ segir Þórður en helstu kröfur samtakanna eru meðal annars að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum.

Hann segir nokkurn fjölda fólks hafa skráð sig í samtökin upp á síðkastið og eins hafa ýmsir aðilar verið að setja sig í samband við samtökin. „Til dæmis hefur Verkalýðsfélag Akranes og Framsýn fyrir norðan lýst yfir stuðningi við okkar hugmyndir. Síðan var varaformaður VR að tala á fundinum þannig við finnum fyrir stuðningi úr ýmsum áttum.“

Í ræðum frummælenda kom fram að ekki væri verið að óska eftir ölmusu frá stjórnvöldum, heldur sanngirni við afar óeðlilegar aðstæður. Á meðal helstu krafna er að heimilunum verði bjargað með því að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum.  Þá leggja samtökin áherslu á að verðtryggingin verði afnumin og áhætta milli lánveitenda og lántakenda jöfnuð.

Halldór Sigurðsson, bloggari, fylgdist með og birtir myndbönd frá Austurvelli á síðu sinni. Kartöflurækt vakti sérstaka athygli hans og fleiri viðstaddra.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is