Með ólíkindum að FME skyldi leyfa uppstokkunina 2003 þegar Björgólfur eignaðist Eimskip
Fífldirfska forstjóra og stjórnar Eimskipafélagsins var með ólíkindum og leiddi til þess að óskabarn þjóðarinnar varð að gjaldþrota vandræðabarni Landsbankans.
Þetta segir Þorkell Sigurlaugsson meðal annars í nýrri bók, Ný framtíðarsýn, sem kemur út á morgun, samkvæmt frétt um bókina á AMX.is.
Þorkell segir Eimskip vera dæmi um það hvernig farið getur þegar lánastofnanir og eigendur þeirra eru bæði stórir hluthafar og stórir lánveitendur í fyrirtækjum.
Hann segir m.a. með ólíkindum. að hið mikla uppbrot viðskiptalífsins árið 2003 þegar Björgólfur Guðmundsson og félagar hans í Samson eignuðust m.a. ráðandi hlut í Eimskipafélaginu og Íslandsbanki hlut Eimskips í Flugleiðum, skuli hafa verið leyft af Fjármálaeftirlitinu og stjórnvöldum.
„Þessi viðburður á eftir að verða skráður í sögunni sem einn merkasti viðburður í sögu viðskiptalífs hér á landi. Nýir auðmenn voru að koma sterkari inn á leikvöllinn og orðið ljóst að bankarnir réðu algjörlega íslensku atvinnulífi, bæði sem lánveitendur og eignaraðilar,“ segir Þorkell.
Í bókinni fjallar Þorkell um nauðsyn þess að þjóðin móti sér nýja framtíðarsýn við endurreisn efnahagslífsins þar sem nýir stjórnarhættir, bætt viðskiptasiðferði, sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.
Þorkell er framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, en hann var áður framkvæmdastjóri hjá Eimskip og Burðarási.
Nánar um bókina á www.bokafelagidugla.is.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
