Tortryggin þjóð: Aðeins 15,5% treysta Seðlabanka, 23,7% ríkis-stjórninni
Íslendingar eru fullir vantrausts á flestum þeim stofnunum sem spurt er um í nýrri traustskönnun MMR, Markaðs og miðlarannsókna, sem gerð var í 2. viku maímánaðar.
Meðal þeirra stofnana sem þjóðin vantreystir eru (raðað samkvæmt vantrausti): Bankakerfið, Fjármálaeftirlitið, Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, lífeyrissjóðirnir, ríkisstjórnin, Seðlabankinn, Alþingi, fjölmiðlarnir og Evrópusambandið.
Háskóli Íslands, Lögreglan, Fréttastofa RÚV og Háskólinn í Reykjavík njóta hins vegar sérstöðu hvað traust almennings varðar.
MMR bendir á að fækkað hafi umtalsvert í hópi þeirra sem þeirra sem segjast bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar, Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Samt nýtur Seðlabankinn trausts einungis 15,5 prósenta og ríkisstjórnin 23,7 prósenta svarenda.

„Athygli vekur þó að það fækkar nokkuð í hópi þeirra sem sögðust bera lítið traust til
fjármálaeftirlitsins og bankakerfisins frá því í könnun MMR í desember síðast liðnum. Þá sögðust 80,2% bera lítið traust til Fjármálaeftirlitsins samanborið við 70,1% nú og 80,1% sögðust bera lítið traust til bankakerfisins samanborið við 71,6% nú.
Það fækkar sömuleiðis í hópi þeirra sem bera lítið traust til Ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans. Þannig sögðust 61,4% bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar í desember samanborið við 49,7% nú og 74,1% sögðust bera lítið traust til Seðlabankans í desember samanborið við 49,4% nú, sem er fækkun um heil 25 prósentustig. Að sama skapi fjölgar þeim um rúman helming sem segjast bera mikið traust til Seðlabankans (fer úr 9,8% í desember í 15,5% nú).
Samkvæmt könnuninni hefur traust til Lífeyrissjóðanna hins vegar dalað mikið. Þannig helmingaðist fjöldi þeirra sem sögðust bera mikið traust til lífeyrisjóðanna milli kannana (fór úr 30,5% í desember í 14,9% nú) á sama tíma og fjöldi þeirra sem sögðust bera lítið traust til lífeyrisjóðanna jókst úr 32,7% í 51,4%,“ segir í tilkynningu MMR.
Traust á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, ESB og fjölmiðlum dalar sömuleiðis.
Nánar (með samanburði við könnunina i desember) í pdf skjali MMR.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
