Ögmundur bjargar andliti ríkisstjórnarinnar. Ætlar að funda með Dalai Lama á morgun
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra ætlar að hitta Dalai Lama, andlegan leiðtoga Tíbeta og friðarverðlaunahafa Nóbels, á morgun. Aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa vikið sér undan því að hitta hann, þ.á m. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma á fundi þeirra meðan á Íslandsheimsókninni stendur.
Þetta framferði ráðherranna hefur sætt harðri gagnrýni í opinberri umræðu undanfarna daga. Líta má svo á að Ögmundur Jónasson bjargi á vissan hátt andliti ríkisstjórnarinnar með fyrirhuguðum fundi með Dalai Lama.
Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld kom fram að tveir ráðherrar í ríkisstjórninni, Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, hefðu sótt friðarstund í Hallgrímskirkju í dag þar sem Dalai Lama kom fram. Ekki er vitað til þess að þau hafi hitt hann eða áformi að eiga fund með honum.
Dalai Lama hittir utanríkismálanefnd og forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, í fyrramálið. Á morgun flytur Dalai Lama ávarp á fundi í Laugardalshöll.
Kínversk stjórnvöld eru mjög andvíg því að opinberir aðilar eigi fundi með Dalai Lama og mótmæla því kröftuglega í hvert skipti sem hann hittir forystumenn þjóða.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
