Sölutrygging fylgdi kaupum Sunds ehf. á 22% hlut í Northern Travel Holding (NTH) í árslok 2006. Þetta kemur fram í úttekt Morgunblaðsins í dag.
Við kaupin lá samkomulag fyrir sem tryggði að Baugur, sem á þeim tíma var stærsti hluthafinn í FL Group, myndi kaupa hlutinn á sama verði og Sund ehf. keypti hann á, um 2,7 milljarða króna. Þannig gat Sund í raun ekki tapað á því að kaupa í NTH. Sund seldi hlut sinn í NTH í árslok 2007, þ.e. innan árs frá því að hann var keyptur.
NTH var á þessum tíma móðurfélag Sterling-flugfélagsins, en efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra framkvæmdi húsleitir á miðvikudag vegna rannsóknar á viðskiptum fv. eigenda félagsins með Sterling.
Morgunblaðið rifjar upp í dag að Hannes Smárason, þáverandi stjórnarformaður FL Group, hafi millifært um þrjá milljarða króna inn á bankareikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg til að „lána“ Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar, fyrir hluta af kaupverði Sterling þegar það var keypt vorið 2005. Kaupverðið var á þeim tíma fjórir milljarðar króna, en Sterling var síðan selt áfram til FL Group rúmu hálfu ári síðar á fimmtán milljarða króna. Að lokum var Sterling síðan selt inn í nýstofnað félag, NTH, í blálok ársins 2006 fyrir 20 milljarða króna. Heimildir Morgunblaðsins herma að þetta hafi einvörðungu verið gert til að koma Sterling úr bókum FL Group. Söluhagnaðurinn var síðan bókfærður og hluthafar FL Group greiddu sér út fimmtán milljarða króna í arð fyrir árið 2006.
Lán sem aldrei voru greidd
NTH skuldaði 20 milljarða króna samkvæmt ársreikningi félagsins 2007. Það eru þeir 20 milljarðar króna sem greiddir voru fyrir Sterling þegar NTH keypti flugfélagið í árslok 2006. Fjórtán milljarðar af því fé voru seljendalán frá FL Group, sem þá var almenningshlutafélag. Hinir sex milljarðarnir voru lán frá Fons til NTH, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Hinn 17. september 2008, hálfum mánuði fyrir bankahrun, tilkynnti FL Group, sem þá hét Stoðir, að félagið hefði selt 34% hlut sinn í NTH til Fons. Samhliða sölunni átti að hafa farið fram uppgjör á fjórtán milljarða króna seljendaláninu sem veitt var þegar FL Group var enn almenningshlutafélag. Talsmenn FL Group/Stoða hafa aldrei viljað gefa upp hvert söluverðið á hlutnum var né hversu mikið af láninu var greitt til baka.
