Frystingu á eignum Landsbankans í Bretlandi samkvæmt þarlendum hryðjuverkalögum verður aflétt 15. júní enda hafi þá Icesave-samkomulagið hlotið staðfestingu Alþingis.
Breska fjármálaráðuneytið hefur staðfest þetta í bréfi til íslenskra stjórnvalda. Þá losna um 50 milljarðar íslenskra króna sem notaður verða til að greiða upp í 630 milljarða króna skuld vegna Icesave-innistæðna.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar í Stjórnarráðinu síðdegis.
Jóhanna sagði að Icesave-samkomulagið væri mikilvægur þáttur í endurreisn fjármálakerfisins á Íslandi.
Steingrímur kvað vextina, sem kveðið er á um í samkomulaginu, 5,55%, afar hagstæða.
