Laugardagur - 6.6 2009 - 09:33 - Ummæli ()

Þorsteinn Pálsson hættir sem ritstjóri Fréttablaðsins

thorsteinn-palsson.jpgÞorsteinn Pálsson er að láta af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins. Líklegt er að tilkynnt verði um það um eða eftir helgina.  Jón Kaldal verður einn ritstjóri blaðsins.

Þetta hefur Eyjan eftir traustum heimildum.

Þorsteinn lætur af störfum að eigin ósk. Ákvörðun hans mun vera ótengd þeim erfiðleikum sem verið hafa í rekstri útgáfufélags Fréttablaðsins, 365 miðla.

Orðrómur hefur verið á kreiki um víðtækar skipulagsbreytinguar innan 365 miðla á næstunni.

Eyjan hefur heimildir fyrir því að Hreinn Loftsson, aðaleigandi útgáfufélagsins Birtings, sem gefur út DV og tímarit eins og Mannlíf, Séð og heyrt og Gestgjafann, vilji að félagið verði sameinað 365 miðlum. Hreinn hefur um árabil verið einn nánasti samstarfsmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Óljóst er um undirtektir við þessa hugmynd.

Þorsteinn Pálsson var ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins snemma árs 2006. Hann hafði þá verið sendiherra Íslands í Bretlandi og Danmörku, en þar áður alþingismaður, sjávarútvegsráðherra, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar