Framvegis verður hver námsmaður ábyrgur fyrir endurgreiðslu eigin námsláns, að uppfylltum skilyrðum stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) um lánshæfismat. Ekki þarf lengur að leggja fram yfirlýsingu annars manns um sjálfskuldarábyrgð.
Þetta er meginefni stjórnarfrumvarps til breytinga á lögum um LÍN sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Breytingin verður ekki afturvirk.
Í greinargerð með frumvarpinu segir að í þágu námsmanna sem ekki uppfylla lánshæfisskilyrði sé hins vegar lagt til að viðhaldið verði þeim möguleika að láta ábyrgðarmann ábyrgjast endurgreiðslur námsláns, leggja fram bankatryggingu eða veðtryggingu í fasteign. Þá er gert ráð fyrir því að stjórn LÍN verði heimilt að binda lánveitingar án ábyrgðar við hámarksfjárhæð sem nánar sé tilgreind í úthlutunarreglum.
Krafan um ábyrgðarmenn á námslán hefur verið umdeild og hefur því verið haldið fram að hún samræmist ekki þeim tilgangi laga um LÍN að tryggja jafnrétti til náms. Sumir námsmenn hafa ekki átt þess kost að afla sér ábyrgðarmanna og því þurft að leggja fram bankatryggingu í þess stað.
