Búsáhaldabylting II að hefjast? – myndir frá Austurvelli
Fjölmenni er nú á Austurvelli, þar sem samningi íslenskra stjórnvalda við Breta og Hollendinga vegna Icesave reikninganna er mótmælt kröftulega. Barið er í trumbur, potta og pönnur og heyrist vel í mannfjöldanum inn í sal Alþingis.
Þingfundur hófst kl. 15, en fyrsta mál á dagskrá voru óundirbúnar fyrirspurnir. Næst gefur svo Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þinginu munnlega skýrslu og má búast við snörpum og jafnvel löngum umræðum þingheims, ef miðað er við viðbrögð ýmissa þingmanna um helgina.
Eyjan er á Austurvelli og fylgist með, einsog þessar myndir sýna. Lítillega skarst í odda milli mótmælenda og lögreglu vegna kyndils sem kveikt hafði verið í en lögregla taldi ástæðu til að slökkva. Þó urðu ekki teljandi deilur vegna þessa.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
