Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist vonast til þess á fundi norrænu forsætisráðherranna á Egilstöðum í gær að tillagan um umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu yrði samþykkt á Alþingi og óskaði eftir stuðningi og góðum ráðum norrænu ESB-ríkjanna í því ferli sem þá tæki við.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins af fundinum. Þar segir að Jóhanna hafi gert norrænu forsætisráðherrunum grein fyrir málinu og að forsætisráðherrar norrænu ESB-þjóðanna (Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar) hafi fagnað þessum áformum og boðið Íslendinga velkomna í Evrópusamstarfið.
Þá segir í frétt forsætisráðuneytisins:
„Fredrik Reinfeldt, forsætisáðherra Svíþjóðar, greindi jafnframt á fundinum frá helstu stefnumálum Svía á formennskutíma þeirra í Evrópusambandinu en þeir taka við formennsku 1. júlí n.k. Hann upplýsti að Svíar myndu leitast við að greiða aðildarumsókn Íslendinga leið hjá Evrópusambandinu og koma henni á dagskrá eins fljótt og auðið væri. Forsætisráðherrar Danmerkur og Finnlands lýstu einnig vilja til að verða að liði.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að fundur norrænu forsætisráðherrarnna sýni að Evrópusamstarfi sé ekki ætlað að koma í stað þess norræna. Norðurlandaþjóðir hafi sterka rödd í Evrópusamstarfinu, þar standi þær saman þegar kemur að sameiginlegum hagsmunamálum og stefnumiðum eins og í málefnum Norður-Atlantshafsins og norðurskautssvæðanna.
Forsætisráðherrarnir ræddu einnig viðbrögð við alþjóðlegu fjármálakreppunni og mikilvægi norræns samráðs og samstarfs til að draga úr afleiðingum hennar. Þá fjölluðu þeir um tillögur um aukið samstarf Norðurlanda í öryggis- og varnarmálum sem kynntar voru í skýrslu Thorvalds Stoltenbergs fyrrverandi utanríkis og varnarmálaráðherra Noregs. Þeir voru sammála um að líta á tillögurnar sem viðbót við alþjóðlegt samstarf í öryggis- og varnarmálum sem fram fer á vegum NATO og Evrópusambandsins og jafnframt að vinna að því að útfæra nokkrar tillögur betur, s.s. um aukið samstarf Norðurlanda um öryggi á N-Atlantshafi og loftrýmisgæslu.
Þá gáfu forsætisráðherrarnir frá sér yfirlýsingu í loftslagsmálum þar sem kveðið er á um að styrkja beri norrænt samstarf til að knýja fram alþjóðlegan sáttmála á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember.
Yfirlýsing norrænna forsætisráðherra í loftslagsmálum, í heild sinni
