Ný 38 milljarða króna snekkja rússneska auðjöfursins Romans Abramovich var sjósett í Þýskalandi á föstudaginn.
Markmið Abramovich var að skipið, sem heitir Eclipse, yrði stærsta einstaklingssnekkja í heimi. Það hefur tekist. Snekkja Chelsea eigandans er sögð 13 þúsund brúttótonn og rúmlega 170 metra löng, nokkrum metrum lengri en fyrri metsnekkja, sem er í eigu Sjeiksins Mohammed bin Rashid Al Maktoum, krónprinsins af Dubai.
Til samanburðar má geta þess að Þór, hið nýja fjölnota varðskip Landhelgisgæslunnar, er 4.250 brúttótonn og rúmlega 93 metrar að lengd.
Eclipse er með eigin eldflaugarvarnarkerfi, tveimur þyrluflugpöllum, úti- og innsundlaug og kafbáti. Snekkjan er brynvarin og allt gler í henni skothelt.
Þýska skipasmíðastöðin Blohm & Voss sem smíðaði Eclipse afhendir skipið fullbúið á næsta ári.
Abramovich er sagður hafa tapað helmingi auðæva sinna í kreppunni og er í 51. sæti á lista Forbes yfir ríkustu menn heims.
Hann er sagður eiga þrjár risasnekkjur fyrir. Sú stærsta þeirra, Pelorus, er 120 metra löng en sú minnsta 50 metrar.
