Meirihluti landsmanna telur ekki rétt að ríkið ábyrgist Icesave innstæður
Drjúgur meirihluti landsmanna er þeirrar skoðunar að Íslendingar verði ekki að ábyrgjast greiðslur vegna Icesave-reikninganna. Nær þrír af hverjum fjórum þeirra sem taka afstöðu telja Íslendinga ekki þurfa að borga. Þetta er niðurstaða könnunar sem MMR gerði fyrir DV.
45,6 prósent allra sem svöruðu sögðust mjög ósammála fullyrðingunni: „Íslendingar verða að ábyrgjast innistæður vegna Icesave-reikninga í útlöndum.“ 17,5 prósent til viðbótar sögðust frekar ósammála fullyrðingunni. Þetta er samanlagt 63,1 prósent aðspurðra. Fimmtán prósent kváðust frekar sammála fullyrðingunni en aðeins 8,8 prósent sögðust mjög sammála henni. 13,1 prósent sagðist hvorki vera sammála né ósammála.
Þessar niðurstöður bætast ofan á harðvítugar deilur um samkomulagið á þingi, tugþúsundir undirskrifta fólks á Facebook-vefnum gegn samkomulaginu og mótmæli í miðbæ Reykjavíkur. Fyrir var vitað að skiptar skoðanir eru um samkomulagið í þingflokki vinstri-grænna og ljóst að margir þar eru andvígir samkomulaginu eða fullir efasemda.
Nú hafa 32 þúsund manns skráð sig gegn samkomulaginu á Facebook. Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli kl. 15 í dag.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
