Miðvikudagur - 17.6 2009 - 12:18 - Ummæli ()

Fréttablaðið ræðst gegn Evu Joly: Ríkisstjórnin fái annan ráðgjafa

eva-joly-frbl.jpgFréttablaðið tekur leiðara í dag eindregna afstöðu gegn Evu Joly, ráðgjafa ríkisstjórnarinnar vegna rannsókna á efnahagsbrotum bankahrunsins.

Jón Kaldal, ritstjóri blaðsins, segir hana hafa brugðist í því hlutverki „að auka tiltrú og slá á þá tortryggni sem teygir sig út í flest horn“ og hvetur til þess að ríkisstjórnin fái annan erlendan ráðgjafa í hennar stað.

Hann segir hugleiðingar stjórnmálamannsins og þjóðfélagsrýnisins Joly trufla verulega stöðu hennar sem sérfræðiráðgjafa ríkisstjórnarinnar í rannsóknum á efnahagsbrotum. „Það er þörf á að minnka tortryggni í samfélaginu. Ekki auka hana eins og helsta framlag Joly hefur verið,“ segir í leiðaranum.

Jón Kaldal segir líka að að sú ráðgjöf Joly að víkja beri Valtý Sigurðssyni ríkissaksóknara frá, hafi opinberaði mikið þekkingarleysi hennar á íslensku réttarfari, sem sé hið vandræðalegasta mál sem ekki er hægt að láta eins og hafi ekki átt sér stað. Joly hafi með ummælum sínum um ríkissaksóknara „sáð skaðlegum og ómaklegum efasemdum“. Legið hafi fyrir að Valtýr Sigurðsson hafi verið búinn að segja sig frá öllum málum tengdum rannsóknum saksóknara bankahrunsins.

Í leiðaranum segir einnig að svo virðist sem margir haldi að Joly hafi beina aðkomu að rannsókn bankahrunsins, sé jafnvel í því starfi með sérstökum saksóknara, Ólafi Þór Haukssyni en það sé meinlegur misskilningur sem sé útbreiddur um hlutverk Evu Joly hér á landi. Hún hafi „ekkert vald um hverja skal rannsaka og síðar mögulega ákæra ef efni gefa til.“

Leiðari Fréttablaðsins í heild.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar