Gífurleg viðbrögð hafa verið við frétt Eyjunnar í dag, þar sem sagt er frá gagnrýni ritstjóra Fréttablaðsins, Jóns Kaldal, á Evu Joly, ráðgjafa saksóknara bankahrunsins. Jón Kaldal vill að ríkisstjórnin víki Evu frá störfum. Fréttablaðið er sem kunnugt er í eigu útrásarvíkingsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Vel á annað hundrað lesendur Eyjunnar hafa sagt skoðun sína á tillögu ritstjórans. Heita má að þeir séu einróma í andstöðu við hugmyndina.
Meðal þeirra sem lesið hafa frétt Eyjunnar er Hallgrímur Helgason rithöfundur. Hann vekur athygli á fréttinni á Facebook-síðu sinni með þessum orðum: Jón Ásgeir Kaldal….
215
97