Enskir dómstólar munu skera úr öllum ágreiningi sem upp kann að rísa vegna samnings Íslendinga um Icesave-reikningana. Fréttastofa RÚV greindi frá þessu í kvöld.
Í samningi Íslands og Hollands kemur fram að rísi ágreiningur um samninginn eða túlkun hans skuli úr honum leyst fyrir enskum dómsstólum. Þó geta Hollendingar farið fram á að málsókn verði höfðuð fyrir öðrum dómstólum.
Geta gengið að eigum íslenska ríkisins
Þá stendur í samningnum að standi Íslendingar ekki við hann geti Hollendingar gengið að eigum ríkissins, þó að því marki sem stjórnarskrá leyfir. Engir fyrirvarar virðast vera fyrir því hvaða eigna Hollendingar geta krafist.
