Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar var á vettvangi þegar eigandinn, sem missti einbýlishúsið í Hólmatúni á Álftanesi, rústaði því í mótmælaskyni í gær.
Þór tók brak úr húsarústunum, sem hann sagðist myndu færa Jóhönnu Sigurðardóttur að gjöf. Þór er búsettur á Álftanesi.
Helgi Jóhann Hauksson, ljósmyndari veftímaritsins Nei. náði myndum af þessu.
