Laugardagur - 20.6 2009 - 06:12 - Ummæli ()

Útflytjendur fara framhjá gjaldeyrishöftum og skila ekki gjaldeyri – Fella þannig krónuna

evra-dollar.jpgÚtflytjendur hafa keypt krónur á aflandsmarkaði í stað þess að skila gjaldeyri heim, einsog skilt er í lögum um gjaldeyrishöft.

Eftir að gjaldeyrishöftunum var komið á laggirnar til að sporna við erlendu útflæði gjaldeyris og styrkja gengi íslensku krónunnar hafa margir stórir útflytjendur verið með sérstaka undanþágu frá reglunum. Borið hefur á því að einhver fyrirtækjanna sem í hlut eiga hafi nýtt tekjur í erlendum gjaldeyri til þess að kaupa krónur á aflandsmarkaði, þar sem miklu fleiri krónur fást fyrir t.d. evrur, og þannig hagnast á reglunum í stað þess að fylgja skilaskyldunni samviskusamlega. Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, hefur nú boðað fulltrúa tuttugu stærstu útflutningsfyrirtækjanna á Íslandi á sinn fund til þess að ræða eftirlit og eftirfylgni með framkvæmd reglna um gjaldeyrismál. Morgunblaðið segir frá þessu í dag.

Fara yfir starfshætti

„Markmiðið er að fara yfir starfshætti og ræða fyrirliggjandi gögn um gjaldeyrisflæði. Þetta ferli er ekki vegna gruns um brot hjá fyrirtækjunum,« segir Øygard við Morgunblaðið. Hann segir að þær undanþágur sem mörg fyrirtækin hafi séu ekki ætlaðar til þess að fyrirtækin hagnist vegna reglnanna. „Seðlabanki Íslands er ánægður með viðtökur fyrirtækjanna á þessu boði og yfirlýstan vilja til samstarfs varðandi þetta mál,“ segir Øygard. Fjármálaeftirlitið hefur að undanförnu rannsakað átta mál þar sem grunur leikur á að reglur um höftin hafi verið brotnar. Forstjóri FME sagði við Morgunblaðið í síðustu viku að ýmsar aðferðir væru notaðar til að fara framhjá reglunum. Dæmi eru um að tekjur af útflutningi skili sér ekki nema að hluta til baka. Eftirlitið hafi því eftir ábendingar frá Seðlabankanum farið að rannsaka slík tilvik. Brot geta þýtt stjórnvaldssekt upp á tíu þúsund til tuttugu milljónir króna fyrir einstakling. Hjá fyrirtækjum eru sektirnar frá fimmtíu þúsund og upp í sjötíu og fimm milljónir króna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar