Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokkins, gagnrýnir harðlega áform ríkisstjórnarinnar um stofnun svokallaðrar Bankasýslu ríkisins. Stofnunin verður sett á laggirnar verði frumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum, en hún á að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum og leggja þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimildar í fjárlögum.
Birgir óttast að með þessu sé eignarhald ríkisins á bönkunum stofnanagert og bendi því til þess að ríkisstjórnin ætli að núverandi eignarhald verði viðvarandi, en það er „afbrigðilegt ástand“ að mati Birgis. Hann hvetur til þess að ríkið losi eign sína sem fyrst.
Þá óttast Birgir að með miðstýrðri stofnun af þessu tagi verði ákvarðanir bankanna samræmdar um of og samkeppni milli þeirra því í hættu.
Í þriðja lagi undrast þingmaðurinn að nú eigi að búa til nýja ríkisstofnun á sama tíma og allir séu sammála um að draga stórlega úr kostnaði hjá ríkinu, hagræða og sameina stofnanir frekar en að stofna nýjar.
Bankasýslunni er ætlað að leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði. Hún á að sjá um að skipa menn í bankaráð og stjórnir fjármálafyrirtækja. Valið verður í höndum þriggja manna valnefndar, sem skipuð er af stjórn Bankasýslunnar. Tekið er fram í frumvarpinu að almenningi gefist kostur á því að bjóða sig fram í stjórnirnar. Þessari nýju ríkisstofnun eru ekki ætlaðir langir lífdagar því í frumvarpinu segir að leggja eigi hana niður eigi síðar en fimm árum eftir að hún verði sett á fót. Bankasýslan verður fámenn þrír til fimm starfsmenn auk forstjóra og er áætlaður rekstrarkostnaður 70 til 80 milljónir króna á ári.
