eyjan.is

Miðvikudagur 24.06.2009 - 10:39 - Ummæli ()

Einar Már með bók um hrunið. ‘Stundum þarf skáldskapargáfu til að sjá hlutina í réttu samhengi’

einar-mar-gudmundsson.jpg‘Við höfum verið stödd í ævintýri sem heitir Nýju fötin keisarans, og vefararnir hafa sagt: Ef þið sjáið ekki hvað við erum snjallir þá eruð þið heimsk, og ekki bara heimsk heldur öfundsjúk, sem er eiginlega verra en að vera heimskur, því heimska menn má senda á námskeið í góðu skólunum okkar. Já, látið okkur fá fiskimiðin, látið okkur fá bankana, og vatnið, fossana og orkufyrirtækin, og við förum með forsetanum um heiminn og segjum: Við erum best í heimi, og ef þið sjáið það ekki eruð þið ekki bara heimsk heldur líka öfundsjúk.’

Þannig kemst skáldið Einar Már Guðmundsson að orði í einni ritgerðanna í nýútkomnu ritgerðarsafni, Hvítu bókinni, þar sem hann ræðir hrunið á Íslandi og menningu, stjórnmál og viðskipti útrásartímans.

‘Hvíta bókin er um margt einstakt verk’, segir útgefandinn, Forlagið, í fréttatilkynningu: ‘fjörug og fyndin bók en um leið miskunnarlaus í lýsingu sinni á íslensku samfélagi og þróun þess á undanförnum árum; hún fer vítt um í tíma og rúmi, blandar saman persónulegum minningum höfundarins og köflum úr stjórnmálasögu heimsins, rokkmúsík og efnahagsumræðu, pólitík og bókmenntum, samfélagsgagnrýni og hollum mannskilningi. Þar sannast að stundum þarf skáldskapargáfu til að sjá hlutina í sínu rétta samhengi og benda á augljósar lausnir.’

Ennfremur segir: ‘Hvíta bókin er bæði hugmyndabanki og óvenjulegt upplýsingarit. Einar Már hlífir engum, hvorki til hægri né vinstri, og spyr óþægilegra spurninga, ekki ólíkt barninu í sögunni sem velti fyrir sér hvers vegna keisarinn væri ekki í neinum fötum. Kveikjan að bókinni var ögrandi skrif Einars í Morgunblaðið fyrstu vikurnar eftir hrunið síðasta haust, en þau vöktu mikla athygli hér heima og erlendis og rötuðu m.a. á síður Information í Danmörku og Gautaborgarpóstsins í Svíþjóð.’


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is