Kristján Arason fékk 900 milljóna kúlulán hjá Kaupþingi árið 2006
DV birtir í dag upplýsingar úr lánabók Kaupþings árið 2006 og kennir þar ýmissa grasa. Samkvæmt lánabók frá júní 2006 koma meðal annars fram lánveitingar til hlutabréfakaupa sem stjórnendur og helstu starfsmenn bankans fengu. Persónulegar ábyrgðir margra þessa starfsmanna fyrir lánunum voru felldar niður nokkrum dögum fyrir bankahrunið í haust. Kristján Arason skuldaði Kaupþingi 893 milljónir króna samkvæmt lánabókinni og var hann skráður fyrir láninu sjálfur. DV mun á næstunni greina frá fleiri atriðum úr lánabókinni.
Kristján Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kaupþings, skuldaði bankanum tæpar 900 milljónir króna um mitt ár 2006. Kristján hafði fengið lánið til að kaupa hlutabréf í bankanum.
Ekki liggur hins vegar ljóst fyrir hversu mikið Kristján skuldaði bankanum þegar hann var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu síðasta haust en reikna má með að hann hafi fengið frekari lánveitingar frá miðju ári 2006 og fram að hruni bankans.
Blaðið rifjar upp að auk lánsins frá Kaupþingi hafi þau hjónin lagt ævisparnað sinn til hlutabréfakaupa í Kaupþingi. Í viðtali við DV í nóvember í fyrra sagði Kristján „Ævisparnaðurinn er farinn, en við eigum þó allavega húsið… Við höfðum mikla trú á Kaupþingi,“ og því má reikna með að í heildina hafi Kristján varið á annan milljarð króna til hlutabréfakaupa í bankanum.
Allir starfsmennirnir, nema Hreiðar Már Sigurðsson, eru skráðir sjálfir fyrir lánunum í lánabókinni en eru ekki með þau inni í eignarhaldsfélagi. Hreiðar er mið sitt lán inn í félaginu Hreiðar Már Sigurðsson ehf.
Kristján hefur áður sagt að hann hafi flutt skuldbindingar sínar yfir í eignarhaldsfélagið 7 hægri snemma árs 2008.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, sagði í viðtölum á morgunvakt Rásar 2 og í morgunþætti Bylgjunnar að blaðið teldi upplýsingarnar eiga skýrt erindi við almenning, þar sem Kristján væri nátengdur æðstu stjórn Sjálfstæðisflokksins.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
