Þriðjudagur - 30.6 2009 - 10:45 - Ummæli ()

Yfirlögfræðingur Kaupþings sem gaf grænt ljós á niðurfellinguna sjálfur með 450 milljóna króna lán

dv-kululan-kaupthing.jpgHelgi Sigurðsson, sem enn er yfirlögfræðingur Kaupþings, skuldaði bankanum tæpar 450 milljónir króna sumarið 2006 vegna lána sem hann, eins og margir aðrir yfirmenn, hafði fengið til hlutabréfakaupa í bankanum. Þetta kemur fram í umfjöllun DV, sem birtir í dag upplýsingar úr lánabók Kaupþings.

Helgi segist, sem lögfræðingur bankans, hafa gefið stjórn hans grænt ljós á að hún hefði heimild til þess, samkvæmt lögum, að fella niður mjög umdeildar persónulegar ábyrgðir starfsmanna út af lánveitingunum. „Stjórnin vildi fullvissa sig um að hún væri að taka ákvörðun sem væri í samræmi við lög… Ég taldi að stjórnin hefði lagalegar heimildir til að taka þessa ákvörðun. Mér fannst það blasa við að stjórnin hefði þessar heimildir og mér fannst það ekki erfið lögfræðileg spurning,“ hefur DV eftir Helga.

Hann vill ekki tjá sig um lánin og telur þau enn vera einkamál.

Helgi segir að þó hann beri vissulega ábyrgð á öllu því sem komi frá lögfræðisviði bankans hafi aðrir lögfræðingar bankans unnið álitið um málið því hann sé ekki helsti sérfræðingur bankans í félagarétti.

Hann segist vitanlega ekki hafa komið að því að taka ákvörðunina um að fella niður ábyrgðirnar, það hafi verið stjórn bankans sem gerði það, en að leitað hafi verið til hans til að gefa álit á málinu.

Lögfræðingarnir Viðar Már Matthíasson og Hörður Felix Harðarson komust svo að þeirri niðurstöðu í lögfræðiálitum síðla árs í fyrra, eftir að niðurfelling ábyrgðanna komst í hámæli í fjölmiðlum, að stjórnin hefði ekki gerst sek um lögbrot þegar ákvörðunin var tekin.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar