Minnihluti kjósenda styður stjórnarflokkana tvo, Samfylkinguna og VG, og ríkisstjórnin hefur ekki stuðning meirihluta landsmanna.
Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Gallup sem sagt var frá í fréttum RÚV í kvöld.
Samkvæmt könnuninni fengi Samfylkingin 25% atkvæða ef kosið yrði nú og Vinstri hreyfingin – grænt framboð fengi 18%. Báðir flokkar tapa frá alþingiskosningunum í apríl.
Stjórnarandstöðuflokkarnir þrír auka allir fylgi sitt. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 28% fylgi, Framsóknarflokkurinn 17% og Borgarahreyfingin 9%.
Tæpur helmingur kjósenda styður ríkisstjórnina samkvæmt frétt RÚV.
