Réttlát reiði almennings ekki sefuð fyrr en eignir auðkýfinganna hafa verið gerðar upptækar
Réttlát reiði almennings á Íslandi rís ekki hvað síst af því, að þeir sem brutu svo herfilega af sér gagnvart þjóðinni, fara ekki bara frjálsir ferða sinna, heldur njóta þeir vellystinga af illa fengnum auð sínum á sama tíma og þjóðinni blæðir. Enn hefur enginn verið ákærður. Enn hafa engar eignir verið gerðar upptækar. Enn hefur ekki vitnast, að skattsvikinn auður skúffufélaga á aflandseyjum, hafi verið endurheimtur.
Þetta segir Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra í nýjum pistli á heimasíðu sinni. Pistillinn er endurbirtur á bloggi Egils Helgasonar á Eyjunni.
Jón Baldvin segir samningsniðurstaðan í Icesave-málinu sé engan veginn hafin yfir gagnrýni. Sú gagnrýni lúti annars vegar að því, að svokallað eignasafn gamla Landsbankans – þrotabúsins – sem eigi að ganga að stórum hluta upp í skuldirnar, sé sýnd veiði en ekki gefin. Og þótt neyðarlögin gefi innistæðueigendum eða handhöfum þeirra krafna ákveðinn forgangsrétt, sé það líka óvissu undirorpið, hvort eftirábreytingar af þessu tagi um meðferð krafna í þrotabú fái staðist, ef á það reyni fyrir dómi.
Jón Baldvin hrósar Steingrími J. Sigfússynu fjármálaráðherra fyrir framgöngu hans í Icesave-málinu og gagnrýnir málflutning stjórnarandstöðunnar sem hann segir ómaklegan. Hitt sé rétt að ekki hafi tekist eyða ótta almennings í landinu gagnvart þeirri áhættu sem tengd sé eignasafni Landsbankans. Í samningnum hefði þurft að vera rækilega skilgreint öryggisákvæði, sem tryggði hagsmuni lántakans með vísan til raunhæfs mats á greiðslugetu, ef allt fer á versta veg, þegar kemur að afborgunum lánsins eftir sjö ár. Þetta séu alvarlegir veikleikar í samningsniðurstöðunni.
Jón Baldvin fjallar um ræður Einars Más Guðmundssonar og Steingríms J. SIgfússonar á Iðnó-fundinum um Icesave. Hann segir að styrkleikinn í ræðu Einars Más hafi um leið verið veikleikinn í málflutningi Steingríms. Hann lýsi sér í því, að það sé siðferðilega óverjandi að ætla íslenskum skattgreiðendum að “borga reikninga óreiðumannanna,” nema því aðeins að íslensk stjórnvöld hafi áður gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að gera upptækar eignir auðkýfinganna, hvar sem til þeirra næst. Hér ættu, segir Jón Baldvin, íslenskir ráðamenn að taka sér í munn einkunnarorð breskrar háttvísi: “After you, Sir!”
„Á sama tíma heyrðu landsmenn í hádegisfréttum á s.l. helgi, að Madoff, afkastamesti féflettir Bandaríkjamanna eftir stríð, sem var ákærður fyrir glæpi sína í desember s.l., hefur nú verið dæmdur til ævilangrar fangelsisvistar og – nota bene – allar eignir hans gerðar upptækar, hvar sem til þeirra næst og andvirði þeirra varið til að bæta fórnarlömbunum skaðann. Svona eru viðbrögð réttvísinnar í réttarríki“, skrifar Jón Baldvin og bætir við: „Réttlát reiði almennings á Íslandi verður ekki sefuð fyrr en – og nema því aðeins að – réttlætið nái fram að ganga, einnig á okkar landi“.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
