Sigurður og Hreiðar Már létu Kaup- þing lána sér um 5,4 milljarða. Efstir á lista yfir áhættulántaka
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, eru samtals skráðir fyrir tæplega 5,4 milljarða lánum í lánabók Kaupþings frá sumrinu 2006. Lánin voru veitt til að kaupa hlutabréf í bankanum.
Þetta kemur fram í DV í morgun. Blaðið kveðst hafa lánabók bankans frá þessum tíma undir höndum.
Fram kemur í blaðinu að Hreiðar og Sigurður eru í öðru og þriðja sæti yfir stærstu lántakendur bankans í lánabókinni í lista sem merktur er „Stærsta áhættutaka gagnvart lögaðilum“. Meirihluti nafnanna á listanum voru þáverandi starfsmenn Kaupþings og veitir listinn yfirlit yfir lántökur til þeirra.
Í lánabókinni er einkahlutafélag í nafni Hreiðars, Hreiðar Már Sigurðsson ehf., skráð fyrir láni frá Kaupþingi upp á rúma 2,7 milljarða og Sigurður er skráður persónulega fyrir láni upp á rúma 2,6.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
