Þór Saari: Þorgerði Katrínu ekki sætt í embætti eftir upplýsingar um lán til eiginmanns
Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar segir að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins, sé ekki sætt í embætti eftir að ljóst varð hve mikla hagsmuni hún hafði í Kaupþingi.
Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
Í frétt RÚV var rifjað upp að DV hefði birt upplýsingar úr lánabók Kaupþings um það hve há lán lykilstarfsmenn bankans fengu frá Kaupþingi til kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi. Einn þeirra var Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar. Lánabók bankans 2006 sýnir að hann skuldaði bankanum tæpar 900 milljónir króna sumarið 2006 vegna hlutabréfakaupa í bankanum.
Þór Saari telur að þó ráðherrann hafi ekki sjálfur fengið 900 milljóna króna lán hafi um mikla hagsmunaárekstra verið að ræða. Þorgerður Katrín hafi komið að öllum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar sem snertu Kaupþing í aðdraganda bankahrunsins og eftir það.
RÚV segir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi ekki v iljað tjá sig um málið þegar eftir því var leitað
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
