Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað 13 manna starfshóp til að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunarinnar, með vísan til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar og VG um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða.
Verkefni starfshópsins verður að skilgreina helstu álitaefni, sem fyrir hendi eru í löggjöfinni og lýsa þeim, segir í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.
Starfshópurinn á að láta vinna nauðsynlegar greiningar og setja að því loknu fram valkosti um leiðir til úrbóta, þannig að greininni verði sköpuð góð rekstrarskilyrði til langs tíma, fiskveiðar verði stundaðar með sjálfbærum hætti og sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar, segir í tilkynningunni.
Þá er starfshópnum gert að hafa sem víðtækast samráð við aðra aðila, t.d. með viðtölum, viðtöku álitsgerða og á veraldarvefnum.
Honum er gert að skila af sér álitsgerð fyrir 1. nóvember n.k. Á grundvelli vinnu starfshópsins og þeirra valkosta sem hann bendir á, mun ráðherra ákveða frekari tilhögun við endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Fulltrúar stjórnmálaflokka:
Guðbjartur Hannesson alþingismaður og Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri, ftr. Samfylkingarinnar. Guðbjartur er jafnframt formaður hópsins.
Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismenn, ftr. Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður, ftr. Framsóknarflokksins.
Einar K. Guðfinnson, alþingismaður, ftr. Sjálfstæðisflokksins.
Fulltrúar annarra:
Árni Bjarnason, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands.
Adolf Guðmundsson, formaður og Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra útvegsmanna.
Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda.
Sigrún B. Jakobsdóttir bæjarfulltrúi, ftr. Samtaka íslenskra sveitarfélaga.
Erla Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri, ftr. Samtaka fiskvinnslustöðva.
Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands.
Aðalsteinn Baldursson, formaður matvælasviðs Starfsgreinasambands Íslands.
Guðmundur Þ. Ragnarsson, formaður VM-Félags vélstjóra og málmtæknimanna.
