Fimmtudagur - 2.7 2009 - 09:52 - Ummæli ()

Norskur ráðherra: Trú á undanþágur frá fiskveiðistefnu ESB eins og að trúa á jólasveininn

brakk.jpgLars Peder Brekk, landbúnaðarráðherra Noregs, segir að Íslendingar muni ekki fá varanlega undanþágu frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins sæki þeir um aðild. Haldi Íslendingar það geti þeir allt eins trúað á jólasveininn.

Þetta er haft eftir honum í viðtali við fréttastofuna Avisenes Nyhetsbyrå samkvæmt norska blaðinu Verdens Gang í morgun.

Brekk situr fund sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Norðurlanda á Ísafirði í þessari viku.

Í viðtalinu segir ráðherrann að Íslendingar leiki rússneska rúlletu með fiskveiðiauðlindir sínar sæki þeir um inngöngu í Evrópusambandið. Hann segir að sjávarútvegsstefna sambandsins hafi versnað frekar en hitt þrátt fyrir áform um að minnka flotann og stöðva ofveiði.

Brekk talar um að innganga Íslands í Evrópusambandið yrði eins og himnasending fyrir sambandið sem fengi stærri fiskveiðilögsögu og auknar fiskveiðiauðlindir. Hann bendir á að hvergi í grænbók Evrópusambandsins um fiskveiðar sé vikið að því að aðildarríki stjórni sjálf fiskveiðum sínum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar