Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra skoraði á lögmannastétt landsins að láta til sín taka í rannsókninni á bankahruninu þegar frumvarp hennar um nýtt embætti sérstaks ríkissaksóknara og þrjá sjálfstæða saksóknara til viðbótar var tekið til fyrstu umræðu á Alþingi í dag.
„Nú er tækifærið,“ sagði Ragna. „Mér finnst það vera samfélagsleg ábyrgð lögfræðinga að skoða það hvort þeir eigi ekki að sækja um að starfa hjá embætti sérstaks saksóknara. Ég tala nú ekki um ef þeir hafa reynslu af saksókn, þá eiga þeir að athuga það með sjálfum sér hvort þeir séu ekki akkúrat mennirnir eða konurnar til þess að sækja um þessi störf. Hér með skora ég á lögfræðinga landsins að athuga þetta mál mjög vandlega.“
Frumvarpinu er ætlað að stórefla embætti sérstaks saksóknara samkvæmt ráðgjöf Evu Joly. Settur verður sérstakur ríkissaksóknari yfir núverandi saksóknara hrunsins, Ólaf Þ. Hauksson. Tveir saksóknarar verða ráðnir til viðbótar, jafnsettir honum.
Hinn nýi sérstaki ríkissaksóknari mun starfa sjálfstætt að rannsókn bankahrunsins við hlið sitjandi ríkissaksóknara, Valtýs Sigurðssonar, sem hafði sagt sig frá þeim málum sem tengjast bankahruninu vegna þess að sonur hans er annar forstjóra Exista.
Áður hafði ríkisstjórnin ákveðið að stórauka fjárveitingar til embættisins, úr upphaflegri áætlun um 76 milljónir króna á ári í 275 milljónir króna. Enn hefur þó ekki tekist að fullmanna embættið samkvæmt þeim kvóta. Ragna sagði störfin krefjast mikillar sérþekkingar og sagði það vera ein af ástæðunum fyrir þessu.
Samkvæmt nýja frumvarpinu sem kynnt var í dag bætast við um 43 milljónir króna á ársgrundvelli.
Ragna bætti þó við að samkvæmt rekstraráætlun sem gerð hafi verið eftir hugmyndum Evu Joly, og sem sérstakur saksóknari hafi tekið undir, sé auk hins nýja embættis sérstaks ríkissaksóknara og þriggja sérstakra saksóknara, gert ráð fyrir að við embættið starfi 14 lögfræðingar, 12 lögreglumenn og sérfræðingar, fjórir löggiltir endurskoðendur og tveir aðrir starfsmenn. Síðan þurfi líka að kaupa ráðgjafarþjónustu. Samkvæmt þessum drögum sagði Ragna að alls væri gert ráð fyrir að kostnaður næmi 490 milljónum króna. Endanlegt skipulag og skipurit yrði þó ekki ljóst fyrr en Alþingi fjallaði um málið.
