Miðvikudagur - 8.7 2009 - 12:48 - Ummæli ()

Rannsóknin á Sjóvá hefur staðið í rúmt ár. Þór sagður enn njóta trausts sem formaður SA

Rannsóknin á Sjóvá og Milestone snýst um meira en fjárfestingar félaganna og bótasjóð Sjóvár og hefur staðið yfir í rúmt ár, að því er kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að rannsóknin snúist um að fé úr vátryggingarrekstri hafi verið notað í fjárfestingarstarfsemi. Vegna gríðarlegs taps á fjárfestingum, hafi Sjóvá ekki lengur átt fyrir vátryggingaskuld sinniog að skilanefnd Glitnis hafi þurft að leggja fram allt að tíu milljarða króna í bótasjóð Sjóvár. En samkvæmt frétt RÚV er einnig verið að skoða aðra þætti í starfsemi Sjóvár og Milestone.

Hjá embætti sérstaks saksóknara er rannsókn málsins sögð á frumstigi. Búist er við að stjórnendur fyrirtækjanna verði boðaðir í skýrslutöku innan skamms.

Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, segir að starfsemi Sjóvár hafi verið í fullu samræmi við lög og reglur um vátryggingarstarfsemi og ávöxtun þeirra sjóða sem eru inni í fyrirtækinu. Hann sagði á Morgunvaktinni á Rás tvö í morgun að Sjóvá væri fjármálafyrirtæki og það væri beinlínis hlutverk fyrirtækisins að ávaxta það fé sem er inn í því hvort sem það væri eigið fé eða svokölluð vátryggingaskuld.

Staða Þórs Sigfússonar sem formanns Samtaka atvinnulífsins er nú til umræðu vegna málsins. Þór var til skamms tíma forstjóri Sjóvár og sætti húsleit í rannsóknaraðgerðum sérstaks saksóknara í gær.

Vilmundur Jósefsson, varaformaður SA, segir að húsleitin í gær breyti engu um stöðu Þórs og hann njóti fulls og óskoraðs trausts stjórnarinnar. Sama þótt Þór fái réttarstöðu grunaðs manns í málinu, hann sé saklaus uns sekt sé sönnuð.

RÚV hefur hinsvegar einnig eftir öðrum stjórnarmanni SA, að ef Þór fengi stöðu grunaðs manns í svo alvarlegu máli, þá sæi hann ekki hvernig Þór væri sætt áfram sem formaður.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar