Miðvikudagur - 15.7 2009 - 07:30 - Ummæli ()

Pétur Blöndal ósáttur við ESB áherslur Ragnheiðar Ríkharðs – Vill að hún skipti um stjórnmálaflokk

ragnheidur-rikhards.jpgPétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi  flokkssystur sína Ragnheiði Ríkharðsdóttur harkalega í umræðum á Alþingi í gærkvöld eftir að hún hafði, ein sjálfstæðismanna, ljáð máls á því að Ísland ætti að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Var að heyra á Pétri að hann teldi Ragnheiði ekki eiga heima í Sjálfstæðisflokknum og lagði hann til að hún stofnaði nýjan flokk.

„Það er ljóst á ræðu háttvirts þingmanns, að hún vill að Ísland gangi í Evrópusambandið,“ sagði Pétur eftir að Ragnheiður hafði lokið ræðu sinni.

„Því vil ég spyrja háttvirtan þingmann hvort hann vilji ekki stofna annan sjálfstæðisflokk?“ spurði Pétur.

Ragnheiður gaf lítið fyrir þessi ummæli flokksbróður síns.

„Pétur Blöndal verður að eiga við sjálfan sig hvernig hann lítur þessi mál og nýjan Sjálfstæðisflokk, það er hans mál,“ sagði hún.

Hún vísaði til þess að í nefndaráliti, blaðsíðu 38, sé það tryggt að náið samráð verði haft við Alþingi og hagsmunaaðila í aðildarviðræður við ESB, en Pétur hafði óttast að utanríkisráðherra hefði „frítt spil“ í þeim efnum. Benti hún á að greinargerð þingsályktunartillögunnar væri bindandi lögskýring löggjafans og því óþarfa áhyggjur Péturs þar að lútandi.

Óvíst hvort Ragnheiður styður tillöguna

Enda þótt Ragnheiður hafi í ræðu sinni talað fyrir því að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu, staðfesti hún ekki hvort hún myndi greiða tillögunni atkvæði sitt.

„Ég veit sjálf hvernig ég mun greiða atkvæði í þessari þingsályktunartillögu og ég treysti íslenskri þjóð til að ráða örlögum sínum í þessu mikilvæga máli. Íslensk þjóð ræður við þetta verkefni,“ sagði hún og gaf þannig sterklega í skyn að hún myndi styðja tillöguna.

Engu að síður gagnrýndi hún harkalega að ríkisstjórnin hefði ekki stuðlað að víðtækara samstarfi um tillöguna á þingi og vísaði ábyrgð á hendur stjórnarflokkunum. Helsta gagnrýni Ragnheiðar snýr að því hvort þjóðaratkvæðagreiðslan verður bindandi eða aðeins ráðgefandi, en Ragnheiður telur nauðsynlegt að þjóðaratkvæðið hafi úrslitavald.

„Ég skora á ríkisstjórn að hún lýsi yfir, áður en atkvæði verða greidd um tillöguna, að hún muni fara þessa leið sem hér var lýst að framan,“ sagði Ragnheiður.

Ekki er ljóst hvernig fulltrúar ríkisstjórnarinnar geti lýst þessu yfir með bindandi hætti áður en gengið verður til atkvæða og vel hugsanlegt að Ragnheiður falli frá stuðningi sínum. Svo virðist sem allir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni greiða atkvæði gegn því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar