Íslendingum er ætlað að greiða lögmannskostnað Breta vegna Icesave-málsins upp á tvo milljarða króna og gerir frumvarp ríkisstjórnarinnar vegna samkomulagsins ráð fyrir ríkisábyrgð á þeim greiðslum.
Þetta kom fram í máli Ragnars H. Hall, hæstaréttarlögmanns á málstofu á vegum Háskóla Íslands um nokkur álitaefni á Icesave samkomulagi sem hófst kl. 12.30 í dag.
Frá þessu er sagt á fréttavef Morgunblaðsins.
Ragnar sagði að til væri sérstakur uppgjörssamningur um það hvernig fara skuli með uppgjör Breta án þess að hann gæti lýst því nákvæmlega í hverju hann fælist. Þar inni væru kröfur sem hann hefði aldrei órað fyrir því að hægt væri að setja fram. Nefndi hann dæmi um að inni í þeirri ríkisábyrgð sem krafist er af Íslendingum væri lögmannskostnaður upp á um tvo milljarða fyrir Breta.
Á mbl.is segir að Ragnar hafi hvatt til þess að þrýst yrði á um að gera þessa samninga opinbera.
Í erindi Ragnars sem bar yfirskriftina ‘Ætlar íslenska ríkið að lögfesta víðtækari ábyrgð en því ber?’ sagði hann það ekki fá staðist að innlánseigendur gætu fengið greidda hærri upphæð en svaraði til endanlegrar úthlutunar úr búi Landsbankans. Sagði Ragnar að færi málið eins og í stefndi væri endanlega lokað fyrir að hægt væri að fara með málið fyrir dómstóla eins og hefði verið í umræðunni.
