Föstudagur - 24.7 2009 - 11:36 - Ummæli ()

DV: Metsöluhöfundur tengdur Existu og Kaupþingi.

olafurarnarson.jpgÓlafur Arnarson, höfundur metsölubókarinnar Sofandi að feigðarósi, sem fjallar um bankahrunið í fyrrahaust, er nátengdur stjórnendum og eigendum Kaupþings og Exista. Gefið er í skyn í fréttaskýringu í DV í dag að þessi tengsl hafi áhrif á skrif hans um skilanefndir bankanna. Ólafur hefur gagnrýnt skilanefndirnar og einstaka skilanefndarmenn harðlega í greinum á vefritinu Pressunni að undanförnu.

Fréttaskýringin í DV í dag, sem Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar,  fjallar um margvísleg hagsmunatengsl skilanefndarmanna og þekktra manna í viðskiptalífinu. Undir lokin er vikið að gagnrýni Ólafs Arnarsonar á setu Ársæls Hafsteinssonar lögfræðings í skilanefnd Landsbankans. Ársæll var framkvæmdastjóri lögfræðisviðs og útlánaeftirlits Landsbankans meðan allt lék í lyndi. Um hann segir Ólafur meðal annars í nýlegum pistli á Pressunni: „Trúverðugleiki uppgjörs bankanna og endurreisnar íslenska bankakerfisins er enginn á meðan lögfræðingurinn, sem ber ábyrgð á Icesave, situr í skilanefnd Landsbankans og deilir og drottnar yfir öðrum.“

Um þetta segir í DV: “Þótt vera Ársæls í skilanefnd Landsbankans kunni að orka tvímælis er ekki vitað til þess að hann hafi með einhverjum hætti borið ábyrgð á Icesave- innlánsreikningunum.“

Blaðamaðurinn bætir síðan við: „Geta má þess að Ólafur Arnarson og Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista, eru systrasynir. Eiginkona Ólafs er systir Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Erlendur Hjaltason hefur ásamt Bakkavararbræðrum reynt að bjarga Exista frá þroti eftir að 25 prósenta hlutur félagsins í Kaupþingi varð að engu í október síðastliðnum. Vera má að það björgunarstarf Erlendar, frænda Ólafs, og annarra ráðamanna Exista sé að engu orðið eftir að Ársæll og aðrir í skilanefnd Landsbankans ákváðu nýverið að gjaldfella meira en 20 milljarða króna lán Exista.“

Samkvæmt upplýsingum Eyjunnar fer DV ekki rétt með tengsl eiginkonu Ólafs og Hreiðars Más. Þau eru ekki systkyni heldur er eiginkonan systir Sigurðar, föður Hreiðars Más.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar