eyjan.is

Fimmtudagur 30.07.2009 - 13:22 - Ummæli ()

Nýstárleg fyrirgreiðsla til fram- dráttar góðum hugmyndum: Örlán frá einstaklingum og fyrirtækjum

orlan.jpgNýstárleg lánafyrirgreiðsla hefst í haust þegar svokölluð örlán, að upphæð allt að þremur milljónum króna, verða á boðstólum í gegnum vefsíðu á netinu. Lánveitendur eru einstaklingar og fyrirtæki en ekki bankar. Fyrirkomulagið á sér erlendar fyrirmyndir og þykir hafa reynst vel. Hugmyndin er að veita góðum hugmyndum í atvinnulífinu brautargengi á þennan hátt. Lánin verða til að byrja með einkum veitt sprotafyrirtækjum.

Það er Ragnheiður Magnúsdóttir hjá ráðgjafarfyrirtækinu Primula sem stendur fyrir framtakinu. Hún er menntuð í framleiðsluverkfræði frá Álaborgarháskóla í Danmörku, með sérþekkingu í vöruþróun. Ragnheiður starfaði í 6 ár hjá Símanum við vöruþróun og verkefnastjórnun og í tæp þrjú ár sem framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisns Mentis hf.

Greint er frá þessu í viðtali við Ragnheiði á Netvarpinu í dag. Þar er fyrirkomulagið nánar útlistað.

Fram kom að lánin verða veitt án veða, en lántakendur gangast undir lánshæfismat.

,


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is