eyjan.is

Sunnudagur 02.08.2009 - 13:53 - Ummæli ()

Hrannar Björn sér eftir ’snubbótri athugasemd’ um Evu Joly. Ósam- mála henni um greiðslugetuna

hrannar.jpgHrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, segist sjá eftir ’snubbóttri athugasemd’ sinni um blaðagrein Evu Joly um Icesave-málið og framkomu Evrópuþjóða við Íslendinga.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Hrannars í dag. Gagnrýni hans á Evu Joly, sem birtist á Facebook í gærkvöldi, hefur vakið mikla athygli og einnig talsverða gremju ef marka má skrif á netinu.

Hrannar Björn segist vilja ‘undirstrika það rækilega að athugasemdir mínar á fésbókinni eru að sjálfsögðu mínar persónulegu skoðanir – ekki annarra eins og sumir virðast leggja út af þeim.’

Síðan segir aðstoðarmaður forsætisráðherra:  ’Ég hefði nú líklega átt að láta það koma betur fram að margt er ágætt í þessari grein Evu, ekki síst það sem hún segir um harðræðið sem Bretar hafa sýnt í öllu þessu máli og einnig það sem hún segir um sameiginlega ábyrgð alþjóðasamfélagsins á vandamálinu – ekki síst ESB og Breta og Hollendinga sérstaklega.  Eins og athugasemdin ber síðan með sér, hef ég mikla trú á henni sem ráðgjafa varðandi skuggahliðar fjármálahrunsins og er ekki í nokkrum vafa um að þar hefur hún lagt þungt lóð á vogarskálar réttlætis á Íslandi. Það sem ég gagnrýni hinsvegar og athugsemdin lítur að eru fullyrðingar hennar um að Ísland geti ekki staðið undir þessum skuldbindingum.’

Hrannar ítrekar síðan að fullyrðingar Evu um greiðslumöguleika Íslendinga séu í ‘algerri andstöðu við allt það sem íslensk stjórnvöld hafa verið að halda fram um þessar skuldbindingar, studd AGS, Seðlabanka og fleiri aðilum og vega í raun að grundvelli þeirrar efnahagsáætlunar sem nú er unnið eftir.’ Hann segir að slíkar fullyrðingar séu ekki líklegar til að auka traust á Íslandi – ‘um það hljótum við að vera sammála,’ segir hann á Facebook.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is