Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – „Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á“
Þráinn Bertelsson efast um heilsu Borgarahreyfingarinnar. Í samtali við Fréttablaðið í dag segir hann þingmenn hreyfingarinnar líta á alla sem fáráðlinga nema sjálfa sig. Kosning þriggja þingmanna hreyfingarinnar gegn ESB-umsókn verður rædd á félagafundi í kvöld.
Þrír af fjórum þingmönnum Borgarahreyfingar, þau Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari, greiddu atkvæði gegn aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi hinn 16. júlí síðastliðinn. Í kjölfarið óskaði stjórn Borgarahreyfingarinnar eftir skýringum á því að þingmennirnir hefðu kosið gegn áður yfirlýstri stefnu hreyfingarinnar. Fram kom í máli stjórnarliða að skýring yrði gefin innan sjö daga, en málið verður tekið upp á félagafundi Borgarahreyfingar í kvöld.
Þráinn: Þremenningarnir líta á alla aðra sem fáráðlinga
Þráinn Bertelsson, sá eini af þingmönnum Borgarahreyfingar sem greiddi atkvæði með aðildarumsókn, segist ekki hafa kallað eftir skýringum á kosningu þremenninganna. „Ég hef ekki verið í neinum samskiptum við þetta ágæta fólk eftir þennan minnisverða dag, þegar þau tóku upp á því að ganga á bak orða sinna. Ég sé ekki ástæðu til að skiptast á orðum við fólk sem ekki er mark takandi á,“ segir Þráinn. Hann segist hafa haft ávinning af því að stjórnin byggist við skýringum á kosningunni. „En svo skildist mér á fréttum frá þeim þremenningum að það væri bara lygi, enda hafa þau þrjú yfirleitt þann háttinn á að líta á alla sem fáráðlinga, nema um þau sjálf sé að ræða,“ segir Þráinn. Hann segist efast um heilsu Borgarahreyfingarinnar en hefur ekki íhugað að hætta starfi í hreyfingunni.
Birgitta Jónsdóttir segir kosningu þremenninganna hafa skýrt sig sjálfa, eftir því sem tengingarnar milli Icesave, ESB og AGS urðu kristaltærar. „Ef þetta hefði ekki skýrt sig sjálft hefðum við komið fram með yfirlýsingu, en þess þurfti ekki,“ segir Birgitta Jónsdóttir.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
