eyjan.is

Föstudagur 07.08.2009 - 23:10 - Ummæli ()

Breska efnahagsbrotastofnunin vill funda með Evu Joly. Býður aðstoð við rannsókn bankahrunsins

eva-joly21.jpgEfnahagsbrotastofnunin breska (Serious Fraud Office) hefur boðið þeim sem rannsaka bankahrunið á Íslandi aðstoð sína og samstarf eftir að hafa kynnt sér lánaskýrslu Kaupþings sem lekið var á netið. Þá vilja sérfræðingar SFO koma á fundi með Evu Joly, ráðgjafa saksóknara bankahrunsins, og ráðgast við hana um rannsóknina og starfshætti íslensku bankanna.

Frá þessu er skýrt á vef Lundúnablaðsins Daily Telegraph í kvöld.

Fram kemur að ákvörðunin tengist því að sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, hefur beint sjónum sínum að viðskiptum Kaupþings við umsvifamenn í bresku viðskiptalífi og fjárfestingum, svo sem Kevin Stanford og bræðurna Moises og Mendi Gertner. Grunur leikur á sýndarviðskiptum í tengslum við kaup þeirra á hlutabréfum í Kaupþingi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is