eyjan.is

Sunnudagur 09.08.2009 - 08:50 - Ummæli ()

Jón Daníelsson tekur undir með öðrum hagfræðingum: Lán fyrir gjaldeyrisforða eru óþörf

jondaniels.jpgJón Daníelsson, hagfræðiprófessor við London School of Economics, bætist í hóp fleiri hagfræðinga sem aðhyllast það sjónarmið, að of mikið sé gert úr mikilvægi þess að byggja um stóran íslenskan gjaldeyrisvaraforðarsjóð við núverandi aðstæður, m.a. með lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðunum, AGS, og frá Norðurlöndunum. Áður hafði t.a.m. Jón Steinsson, lektor við Colmbia háskóla í Bandaríkjunum, haldið því sama fram, einsog greint var frá á Eyjunni í gær.

Ummæli hagfræðinganna koma í tilefni þess að almennt er talað um að lán frá AGS  og Norðurlöndunum séu forsenda þess að hægt verði að koma hjólum atvinnulífsins á ferð á ný. Nauðsynlegt sé að byggja upp öflugan gjaldeyrisvaraforðasjóð, sem þó verði aldrei notaður, einsog stjórnvöld hafa talað um.

Lánin eru hærri en Icesave – höfum ekki efni á þeim

Jón Daníelsson segir hinsvegar í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að það hafi engan tilgang að byggja upp gjaldeyrisvarasjóð ef það er fyrirfram ákveðið að ekki megi eyða honum.

„Ég er alveg sammála þessum sjónarmiðum, að það er ófært að ætla að nota þessi lán og því skil ég ekki af hverju liggur á að fá þennan pening til landsins, ef ekki á að nota hann,“ segir Jón.

„Ef við setum þetta í samhengi, þá eru þesssi lán hærri upphæð en allur Icesave-pakkinn. Ef við höfum ekki efni á að taka Icesave á okkur, þá hlýtur að liggja ljóst fyrir að við höfum ekki heldur efni á að eyða þessum peningum í að styrkja krónuna. Þetta vita allir sem fylgjast með gjaldeyrismörkuðum.“

Jón sagði jafnframt að samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn væri mikilvægt, en í því skyni að skapa tiltrú á Íslandi. En  lánin margumræddu hefðu ekki mikilvægt vægi.

„Gjaldeyrisvaraforði, sem ekki má eyða, hefur engan tilgang,“ segir Jón Daníelsson.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is